Um hvað lífið getur oft verið erfitt, en skondið.. ....Read More
Í dag fór ég á fund hjá Forever Living. Þar hitti ég mann sem er að byrja sín fyrstu skref sem sjálfstæður söluaðili hjá Forever Living. Við ræddum saman um heima og geyma og þar kom að talið barst í það að ég hafi átt heima í Thailandi í um átta ára skeið, og væri enn skráður í hjúskap við fyrrverandi konu mína, þó við hefðum lokið samvistum fyrir um níu árum síðan.
Þegar til Íslands kom, fór ég til Sýslumans í Reykjavík og ættlaði nú að ganga frá þessu í eitt skipti fyrir öll. En allt á sama veg. Þó stæði skýrum stöfum í samkomulaginu frá dómstólum í Thailandi að við samþykktum bæði skilnað, að þá var það ekki nóg.